Í brennidepli
Sumarfrí Endurmenntunar
Lokað verður í Endurmenntun vegna sumarfría frá 5. júlí til 3. ágúst. Námskeið haustmisseris eru komin á vefinn og tekið er við skráningum hér á síðuni okkar. Sjá framboðið
hér
Enn tekið við umsóknum í nokkrar námsbrautir
Við erum enn með nokkur sæti laus í eftirfarandi námsbrautir sem hefjast í haust:
Gæðastjórnun,
Leiðsögunám á háskólastigi,
Hugverkaréttur og
Matsfræði. Hægt er að stunda Leiðsögunám á háskólastigi í fjarnámi.
Ertu á leið í háskólanám?
Hjá okkur eru í boði undirbúningsnámskeið sem eru tilvalin fyrir þá sem eru að hefja háskólanám. Við erum með eitt í stærðfræði fyrir nýnema á verkfræði og náttúruvísindasviði sem hefst 9. ágúst og annað í efnafræði sem hefst 3. ágúst og vegna mikillar aðsóknar er nú komið aukanámskeið um akademísk vinnubrögð sem hefst 16. ágúst. Kynntu þér málið
hér
Námskeið á meistarastigi í samstarfi við deildir Háskóla Íslands
Við erum með fjölbreytt framboð meistaranámskeiða sem haldin eru í samstarfi við deildir Háskóla Íslands. Umsækjendur sækja um á vefnum á þar til gerðum umsóknareyðublöðum og láta prófskírteini fylgja umsókn. Umsóknarfrestur í námskeið sem hefjast í september verður til 16. ágúst. Ekki er tekið við umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur. Kynntu þér framboðið
hér