Smelltu hér ef þú sérð ekki póstinn.

Brestir í innviðum ríkisins - smáríki, stjórnun þeirra og veikleikar -

Endurmenntun býður upp á nýja og einstaklega spennandi fyrirlestrarröð um ríkið og bresti í innviðum þess (e. Government failure).
Fjallað verður um:

  • ríkið og heildstæð mynd gefin af eðli þess
  • alþjóðlegar kenningar um vangetu ríkisins til þess að taka hina ,,bestu mögulegu ákvörðun”
  • lausnir um til hvaða ráða grípa verði svo agi og festa einkenni stjórnun hins opinbera.
Fyrirlestrarnir eru ætlaðir öllum þeim sem vilja öðlast betri skilning á hinum veiku innviðum ríkisins og hvernig styrkja megi stoðir þess. Notuð verður einföld og þverfagleg nálgun - og jákvætt viðhorf - til að skýra viðfangsefnið.

Í fyrsta hluta námskeiðsins verður fjallað almennt um ríkið og það borið saman við rekstur einkarekins fyrirtækis. Í öðrum hluta verður farið yfir kenningar sem skýra vangetu handhafa ríkisvalds (löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds) til þess að taka réttar og hlutlausar ákvarðanir séð frá sjónarhóli almannahagsmuna. Í lok námskeiðsins verður hugað að nýjum og róttækum lausnum til þess að bæta innri stjórnun ríkisins og auka þannig gæði ákvarðana þess.

Með hliðsjón af mikilli þjóðfélagsumræðu um ríkið og ábyrgð valdhafa er tímasetning þessa námskeiðs einstök.

Kennari: Ólafur Reynir Guðmundsson, lögfræðingur, MPA/MBA frá Harvard
Tími: Þri. og mið. 16.-17. mars kl. 16:15-19:15 (2x)
Verð: 14.500 kr.
Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning hér
eða í síma 525 4444



Ef þú óskar ekki eftir upplýsingum um námskeið í tölvupósti, vinsamlegast skráðu þig hér