Námskeiðin Undur vísindanna
7.4.2010
Fjögur námskeið um vísindi sem henta sérstaklega fyrir krakka á
aldrinum
8-12 ára og aðstandendur þeirra en eru opin öllum áhugasömum eru haldin
hjá okkur á tímabilinu 10. apríl til 1. maí. Á námskeiðunum fjalla
fræðimenn Háskóla Íslands um vísindi á
lifandi og skemmtilegan hátt. Námskeiðin eru:
Undur himingeimsins: Ferðalag út í geiminn - AUKANÁMSKEIÐ (17. apríl)
Undur ljóssins: Leyndardómur ljóssins afhjúpaðir (17. apríl)
Undur hugmyndanna: Hvernig verður hugmynd að veruleika (24. apríl)
Undur hafdjúpanna: Líf og atferli hvala (1. maí)
Við hvetjum áhugasama til að skrá sig sem fyrst því síðast komust færri að en vildu.
Námskeiðin eru samstarfsverkefni Endurmenntunar, Orkuveitunnar og Vísindavefsins.
Öll námskeiðin eru haldin í húsnæði Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1.