Njála, jazz, súkkulaði og fröken Reykjavík

26.8.2010
Menningar, sjálfsræktar og tungumála bæklingurinn okkar er kominn út. Í honum kynnum við með stolti rúmlega 40 fjölbreytt námskeið á haustmisseri, hvert annað áhugaverðara svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Bæklingnum verður dreift með Fréttablaðinu víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Ef hann berst ekki til þín getur þú haft samband í síma 525 4444 eða sent póst á endurmenntun@hi.is og við sendum þér bæklinginn. Einnig má skoða bæklinginn með því að smella hér

Við leggjum áherslu á að námskeiðin okkar eru fyrir alla, óháð fyrri menntun.

Það borgar sig á skrá sig tímanlega því þann 15. september drögum við út tvo heppna vinningshafa sem hafa skráð sig á eitthvert námskeiðanna í bæklingnum og hljóta þeir gjafabréf frá Endurmenntun að verðmæti 15.000 krónur.