Námskeiðslýsing

 
Þegar námskeið er skipulagt og kynnt á vegum Endurmenntunar er mikilvægt að hafa titil og lýsingu í góðu samræmi við efnistök. Titill námskeiðs þarf að endurspegla vel viðfangsefnið og fanga athyglina. Námskeiðslýsingin þarf að vera vel læsileg og auðskiljanleg. Nánari upplýsingar hér að neðan:
 
Leiðbeiningar um gerð námskeiðslýsingar

 

Námsgögn

 
Vönduð námsgögn eru mikilvægur þáttur í vel heppnuðu námskeiði og því þarf að huga að því hvernig best sé að koma efni sínu á framfæri, í fyrirlestrum, glærum og prentuðu efni. Taka þarf tillit til magns, útlits, skýrleika á texta, uppsetningar o.fl. Til að tryggja vandaðan frágang á námsgögnun þurfa þau að berast fimm virkum dögum áður en námskeið hefst, helst í tölvutæku formi í netfangið: namsgogn@endurmenntun.is. Allt námsefni og upplýsingar um niðurröðun þess skulu berast í þetta pósthólf til umsjónarmanns námsgagna sem veitir einnig upplýsingar í síma 525 4444. 

Sjá nánari upplýsingar um námsgagnagerð í skjali hér að neðan. Þar má einnig finna sniðmát og gátlista vegna framkvæmdar námskeiða.

 

Leiðbeiningar um gerð námsgagna
Word snið - landscape

Word snið - portrait

PowerPoint snið

Gátlisti vegna framkvæmdar námskeiðs