Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun (Haust 2010)

Hvenær: 10.08.2010 - 01.05.2011

Viðskiptaumhverfi nútímans kallar eftir fólki sem hefur færni til að taka þátt í og stjórna margvíslegum verkefnum. Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er fjölbreytt nám, ætlað öllum þeim sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Námið gagnast stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og í daglegu lífi.

Nánari upplýsingar hér 

 


Leiðsögunám á háskólastigi - einnig kennt í fjarnámi (Haust 2010)

Hvenær: 17.08.2010 - 01.06.2011

Leiðsögunám á háskólastigi er námsbraut fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi.  Námsbrautin hefst í ágúst 2010 og lýkur í lok júní 2011 Námið býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi. 

Inntökuskilyrði í námið eru:
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
- Gott vald á íslensku.
- Fullt vald á því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn. Standast þarf inntökupróf í tungumálinu.
Enn er tekið við umsóknum.

Nánari upplýsingar hér 

 


Námstækni

Hvenær: 25.08.2010 - 01.09.2010

Ætlað nemendum sem eru að hefja nám hjá Endurmenntun HÍ. Hentar þeim sem ekki hafa sótt sambærileg námskeið áður.
(Ath. þetta er óskylt námskeiðinu Akademísk vinnubrögð).

Nánari upplýsingar hér 

 


Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS
- Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa
- Kynverund, siðfræði og samfélag
- Kynlíf og samtími

Hvenær: 01.09.2010 - 31.12.2011

Nám í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hvatamaður þess og ráðgjafi í upphafi var Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðingur. Námið er í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar.
Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.


Nemendur skulu hafa lokið BS, BA, BEd námi. Námið er einkum ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis-, og uppeldisvísinda s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.

Umsóknarfrestur til 20. júní 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Matsfræði
Grunnnám 24 ein -Markaðsmat 50 ein- Kostnaðarmat 50 ein (Haust 2010)

Hvenær: 01.09.2010 - 15.12.2010

Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.


Námsbrautin er ætluð verk- og tæknifræðingum, lögfræðingum, viðskiptafræðingum, byggingafræðingum, iðnfræðingum, löggiltum fasteignasölum og arkitektum. Auk þess er námið ætlað þeim sem hafa umfangsmikla reynslu af mannvirkjagerð og fasteignamarkaði og vilja afla sér frekari menntunar á þessu sviði.
Stúdentsprófs eða sambærilegs náms er krafist sem lágmarksinntökuskilyrða.
Á haustmisseri 2010 verða kennd námskeiðin Skoðun I og Skoðun II. Nánari tímsetning verður tilkynnt síðar.

Umsóknarfrestur er til 6. ágúst.

Nánari upplýsingar hér 

 


Gæðastjórnun (Haust 2010)

Hvenær: 02.09.2010 - 01.05.2011

Námið er metnaðarfullt, krefjandi og hagnýtt fyrir þá sem vilja öðlast akademíska jafnt sem hagnýta þekkingu og færni á sviði gæðastjórnunar. Nemendur öðlast víðtæka þjálfun á öllum helstu sviðum gæðastjórnunar sem gerir þeim kleift að takast á við ný og krefjandi verkefni. Námið hentar vel þeim sem bera ábyrgð á gæðamálum fyrirtækja og stofnana eða hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi.
Enn er tekið við umsóknum.

Nánari upplýsingar hér 

 


Google í skólastarfi

Hvenær: 20.09.2010 - 27.09.2010

Google hefur verið í framvarðarsveit við að þróa tæki og tól til opinna samskipta- og samvinnuhátta. Sett hefur verið saman verkfærakista, sem stendur menntastofnunum til boða endurgjaldslaust. Í verkfærakistunni er póstkerfi, skrifstofupakki og vefsíðukerfi. Verkfærin mynda saman grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi. Upplýsingakerfi Google hvetur til gagnvirkra samskipta skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið. Skráningarfrestur er til 13. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Íslenskt nútímasamfélag

Hvenær: 21.09.2010 - 14.10.2010

Námskeiðið fellur undir námsbrautina Leiðsögunám á háskólastigi. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 6 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.

Nánari upplýsingar hér 

 


Að telja rétt fram

Hvenær: 22.09.2010 - 22.09.2010

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stunda sjálfstæðan rekstur sem fræðimenn, rithöfundar og listamenn svo og þeir sem annast um skattskil slíkra aðila. Námskeiðið hentar einnig öllum sem gera út að heiman og hafa tekjur í formi sölu á þjónustu svo og hvers konar styrkja.
Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.

Skráningarfrestur er til 14. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Að byggja upp árangursríka samvinnu við foreldra leik- og grunnskólanemenda

Hvenær: 24.09.2010 - 25.09.2010

Á námskeiðinu, sem ætlað er leik- og grunnskólakennurum, gefst áhugasömum tækifæri til að auka hæfni sína í lausnamiðuðu vinnulagi með það að markmiði að byggja upp góð samskipti og auka samvinnu við foreldra. Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda í vor.

Skráningarfrestur er til 16. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Lestur ársreikninga

Hvenær: 27.09.2010 - 28.09.2010

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja geta lesið ársreikninga fyrirtækja og skilið þær upplýsingar sem þar er að finna um afkomu og efnahag. Athygli er einnig vakin á námskeiðinu Greining ársreikninga, þar sem kafað er dýpra í kennitölur og fleira. Ein. FLE: 6 Reikningsskil.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Flott í alla staði, mjög ánægð með frammistöðu kennara, hefur greinilega mikinn áhuga sjálfur á viðfangsefninu og með metnað um að koma námsefninu vel til skila”
  • ”Sérlega vel framsett, skýrt og sett í samhengi við raunveruleikann”
  • ”Virkileg skýr og skemmtilegur kennari. Bara ef allir bókfærslukennarar kæmu efninu svona vel frá sér!”

Nánari upplýsingar hér 

 


Excel I - fjármál og rekstur

Hvenær: 27.09.2010 - 04.10.2010

Ætlað öllum þeim sem starfa með Excel í tengslum við fjármál og rekstur og langar að læra meira. Gert er ráð fyrir nokkurri færni í Excel, en farið er hratt yfir grunnatriði í upphafi námskeiðs.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið.
Ein. FLE: 12 almennt.

Skráningarfrestur er til 17. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Virðismat fyrirtækja

Hvenær: 29.09.2010 - 13.10.2010

Ætlað fjármálastjórum fyrirtækja sem og öðrum stjórnendum auk endurskoðenda og annarra sem koma að fjármálum fyrirtækja. Námskeiðið hefur nú verið lengt um þriðjung til að koma að verklegum æfingum í Excel. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi meðferðis fartölvur í síðasta tíma.
Ein. FLE: 12 Almennt.

Skráningarfrestur er til 21. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Gerð viðskipta- og fjárhagsáætlana

Hvenær: 30.09.2010 - 02.10.2010

Ætlað öllum þeim sem vilja styrkja sig í markvissri gerð viðskipta- og fjárhagsáætlana s.s. frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum, smærri fyrirtækjum og einstaklingum sem stunda eigin rekstur. Hentar sérstaklega þeim sem hafa hug á að sækja um styrki til verkefna hér heima og í útlöndum.

Skráningarfrestur er til 22. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni ungra barna

Hvenær: 30.09.2010 - 01.10.2010

Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla, s.s. leikskólakennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.

Skráningarfrestur er til 22. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Fjármálaenska ( e. English for global finance& banking) - International Banking, World Economics & Investments

Hvenær: 06.10.2010 - 10.11.2010

Ætlað þeim sem hafa haldgóða enskukunnáttu en vilja efla þekkingu sína á hugtökum fjármálaensku og þjálfa orðaforða, hlustun, tal og ritun. Námskeiðið fer fram á ensku.
This course is designed for intermediate learners and above who would like to improve their banking and financial English in the following three areas: International Banking, World Economics and Investments.

Nánari upplýsingar hér 

 


Excel - Veltitöflur (PivotTable)

Hvenær: 07.10.2010 - 07.10.2010

Ætlað þeim sem þekkja til Excel og vilja kynna sér sérstaklega og rækilega möguleika veltitaflna.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið.
Ein. FLE: 4 Almennt

Skráningarfrestur er til 29. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Grunnþættir reksturs og fjármála

Hvenær: 07.10.2010 - 28.10.2010

Ætlað öllum millistjórnendum og sjálfstætt starfandi stjórnendum sem ekki hafa menntun á sviði viðskiptafræði og vilja ná betri tökum á helstu hugtökum og aðferðafræði reksturs og fjármála.

Skráningarfrestur er til 29. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Sjóðstreymi - einn vanmetnasti kafli ársreikningsins -

Hvenær: 08.10.2010 - 08.10.2010

Æskilegt er að þátttakendur kunni skil á helstu hugtökum reikningshalds og hafi grunnþekkingu í lestri ársreiknings.

Skráningarfrestur er til 30. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Excel II - fjármál og rekstur

Hvenær: 12.10.2010 - 19.10.2010

Ætlað öllum sem þurfa að vinna með mikið af gögnum eða setja upp líkön sem byggjast á sjálfvirkni, þ.e. fyrir alla í rekstrar-, vöru- og fjármálastjórnun og aðra sem hafa notað Excel en langar að læra meira.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið.
Ein. FLE: 12 Almennt.

Skráningarfrestur er til 4. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Hugarkort: Verkfæri kennarans

Hvenær: 13.10.2010 - 13.10.2010

Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:

  • Eigin undirbúning fyrir kennslu
  • Skipulagningu kennslu
  • Samvinnu og aðstoð við nemendur


Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

 


Greining ársreikninga

Hvenær: 18.10.2010 - 19.10.2010

Námskeiðið er ætlað þeim sem þurfa að rýna í ársreikninga fyrirtækja og gera ýmsar greiningar á þeim. Hér er kafað dýpra í ársreikninga heldur en á námskeiðinu Lestur ársreikninga, en þetta námskeiðið er þó sjálfstætt. Reiknað er með að þátttakendur séu læsir á ársreikninga, þ.e. hafi góðan skilning á eðli þeirra og formi. Ein. FLE: 6 Reikningsskil.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Frábært námskeið sem mæla má með við aðra, ekki hvað síst á þessum tímum”
  • ”Mjög gott námskeið”
  • ”Bjarni er fyrirtaks kennari og eins og áður fer maður fróðari af námskeiðum hans”

Nánari upplýsingar hér 

 


Skattlagning óheimillrar úttektar úr atvinnurekstri

Hvenær: 18.10.2010 - 18.10.2010

Ætlað fjármálastjórum í fyrirtæjum og þeim sem veita ráðgjöf um skattamál fyrirtækja eins og bókhöldurum og endurskoðendum.

Á undanförnum árum hefur orðið gríðarleg aukning á fjölda einkahlutafélaga og sameignarfélaga/samlagsfélaga. Er það skiljanlegt þar sem hagfeldara hefur verið skattalega að stunda atvinnurekstur í félagsformi en einstaklingsformi.
Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.

Skráningarfrestur er til 8. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Menning og saga

Hvenær: 19.10.2010 - 06.01.2011

Námskeiðið fellur undir námsbrautina Leiðsögunám á háskólastigi. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 12 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.

Nánari upplýsingar hér 

 


Arðsemismat verkefna - reiknilíkön í Excel

Hvenær: 20.10.2010 - 03.11.2010

Ætlað fjármálastjórum og sérfræðingum í fjármálum í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og fjármálafyrirtækjum.
Ein. FLE: 5 Reikningsskil og fjármál. Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Gott námskeið, hnitmiðað og markvisst”
  • ”Fínt námskeið”
Skráningarfrestur er til 12. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Hugarkort: Verkfæri kennarans - Námskeið í fjarfundi

Hvenær: 20.10.2010 - 20.10.2010

Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.

Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:

  • Eigin undirbúning fyrir kennslu
  • Skipulagningu kennslu
  • Samvinnu og aðstoð við nemendur

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

 


Íslenski þroskalistinn

Hvenær: 21.10.2010 - 21.10.2010

Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og uppeldisgreinum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 22.

Skráningarfrestur er til 13. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Hugverkaréttur - með sérstakri áherslu á einkaleyfarétt (Haust 2010)

Hvenær: 21.10.2010 - 30.03.2011

Nám í Hugverkarétti er samstarfsverkefni Félags einkaleyfasérfræðinga, Einkaleyfastofu og Endurmenntunar Háskóla Íslands.

Námið er sérlega hentugt þeim sem eru að taka sín fyrstu skref á sviði hugverkaréttinda og hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi, sérstaklega innan einkaleyfaréttar. Þá er námið hugsað sem grundvöllur frekari undirbúnings fyrir próf til starfsréttinda sem evrópskur forsvarsmaður einkaleyfa (European Patent Attorney), en slík réttindi opna ýmsa atvinnumöguleika hér á landi, sem og innan Evrópu. Einnig hentar námið vel stjórnendum og þeim sem bera ábyrgð á hugverkaréttindum innan fyrirtækja og stofnana hér á landi. Nemendur í framhaldsnámi, sérstaklega innan verkfræði, raunvísinda, lyf- og læknisfræði hafa einnig gagn af náminu.

Nánari upplýsingar hér 

 


Smábarnalistinn: Staðlaður þroskalisti handa ungbörnum

Hvenær: 22.10.2010 - 22.10.2010

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar með börnum á leikskólaaldri og hefur lokið réttindanámskeiði í Íslenska þroskalistanum. Smábarnalistinn er frumsaminn og staðlaður þroskalisti til að meta mál- og hreyfiþroska ungbarna á aldrinum 15 til 38 mánaða. Listinn er sjálfstætt framhald af Íslenska þroskalistanum.

Skráningarfrestur er til 13. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Kvíði barna og unglinga

Hvenær: 29.10.2010 - 29.10.2010

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans


Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.
Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun.
Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 21. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð

Hvenær: 01.11.2010 - 02.11.2010

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.


Ætlað kennurum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu í vor:

  • ”Mjög áhugavert námskeið. Kennara tókst mjög vel að koma námsefninu til skila. Skemmtilegt!”
  • ”Mjög gagnlegt og skemmtilegt námskeið.”
  • ”Frábært námskeið og frábær kennari - væri til í að taka það aftur á morgun.”

Nánari upplýsingar hér 

 


Skattlagning við eftirgjöf á skuldum

Hvenær: 08.11.2010 - 08.11.2010

Ætlað löggiltum endurskoðendum, viðurkenndum bókurum og lögfræðingum. Námskeiðið hentar öllum sem starfa við bókhald og reikningsskil svo og þeim er starfa að skattframkvæmd eða láta sig skattamál varða í einni eða annarri mynd. Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.

Fyrirlestrar fara fram á ensku. Skráningarfrestur er til 11. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Val á rekstrarformi fyrir atvinnustarfsemi

Hvenær: 10.11.2010 - 10.11.2010

Ætlað þeim sem eru að hefja atvinnurekstur eða eru að íhuga að breyta rekstrarformi fyrirtækis síns.

Þeir sem eru að hefja atvinnurekstur velta iðulega fyrir sér hvaða form þeir eigi að hafa á fyrirtæki sínu. Eiga þeir að stunda atvinnureksturinn á eigin kennitölu eða kennitölu félags og hvaða félags er þá gjarnan spurt.
Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.

Skráningarfrestur er til 2. nóvember 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja - markviss leið

Hvenær: 11.11.2010 - 26.02.2011

Námið er ætlað öllum sem hafa áhuga á atvinnurekstri eða eru þegar í rekstri smáfyrirtækja og hentar bæði einyrkjum og þeim sem eru með starfsmannahald.

Námið er öllum opið og er án inntökuskilyrða.

Umsóknarfrestur er til 18. október 2010

Nánari upplýsingar hér 

 


Jákvæð agastjórnun: Leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi

Hvenær: 18.11.2010 - 19.11.2010

Námskeiðið er ætlað starfsfólki grunnskóla, s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.
Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun og leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Gefið verður yfirlit yfir raunprófaðar aðferðir til að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun samhliða því að festa jákvæða hegðun og líðan í sessi. Fjallað verður um lausnamiðað viðhorf, góðan liðsanda, skipulag, væntingar, samskipti og fjölbreyttar leiðir til að hvetja nemendur til að sýna viðeigandi hegðun.

Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar
- fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör
(Vor 2011)

Hvenær: 08.02.2011 - 13.12.2011

Námið er ætlað öllum þeim sem starfa við ráðgjöf og bera ábyrgð á ráðgjafasamningum, ráðningu hönnuða, útboðum, gerð útboðsgagna, samningum við verktaka, fjármögnum verkefna og áhættugreiningu innan fyrirtækja og stofnanna. Námið hentar tæknifræðingum, verkfræðingum, arkitektum, landslagshönnuðum og lögfræðingum ásamt öðrum ráðgjöfum í skyldum fögum sem og verktökum, verkkaupum sem hyggjast tileinka sér þetta sérsvið.

Nánari upplýsingar hér 

 


Fjölskyldumeðferð - Nám á meistarastigi (Haust 2011)

Hvenær: 01.09.2011 - 30.05.2013

Í samstarfi við Félagsráðgjafadeild HÍ, Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð, Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd og Diakonhjemmets Högskola í Noregi.

Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar.
Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur:
Hafa tveggja til þriggja ára starfsreynslu á sviðinu
Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð
Vera starfandi á sviðinu á meðan á námi stendur
Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi

Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal.

Nánari upplýsingar hér 

 


Skimun erfiðleika í stærðfræði með Talnalykli

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Ætlað þeim sem öðlast hafa réttindi til að nota Talnalykil með tilskildu námskeiði s.s. bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Réttindanámskeið í notkun Talnalykils eru haldin reglulega hjá EHÍ.

Nánari upplýsingar hér 

 


Talnalykill: Staðal- og markbundið próf í stærðfræði

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Talnalykill er greinandi próf í stærðfræði fyrir nemendur í 1. - 7. bekk grunnskóla. Námskeiðið er ætlað bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Þátttaka í námskeiði er forsenda fyrir notkun prófsins.

Nánari upplýsingar hér 

 


Matsfræði - Skoðun I (Haust 2010)

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Markmið með námskeiðinu Skoðun I er að kynna ítarlega þrjár meginaðferðir matsfræðinnar. Þjálfun er veitt í reikniaðferðum sem notaðar eru í matsfræðum.
Enn er tekið við umsóknum.

Nánari upplýsingar hér 

 


Matsfræði - Skoðun II (Haust 2010)

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.


Markmið með námskeiðinu Skoðun II er að gera nemendur hæfa til að framkvæma sjónskoðun og semja tæmandi lýsingu á algengustu gerðum fasteigna.
Enn er tekið við umsóknum.

Nánari upplýsingar hér