Nám til eininga á háskólastigi
Skólaárið 2012-2013 mun starfandi framhaldsskólakennurum standa til boða námskeið til 10 eininga á meistarastigi: Markmið, hæfniviðmið og námsmat (KEN007M). Með námskeiðinu eru kennurum og stjórnendum framhaldsskóla skapaðar aðstæður til að efla þekkingu sína, leikni og hæfni við samstillingu markmiða, hæfniviðmiða og mats á námi og kennslu. Sérstök áhersla er lögð á samhæfingu hæfniviðmiða (learning outscomes) annars vegar og námsmats hins vegar, jafnt prófa sem annars námsmats, þar sem réttmæti er haft að leiðarljósi.
Námskeiðið er fyrir kennara í framhaldsskólum (í að lágmarki 50 % starfshlutfalli) og er viðurkennt bæði á meistara- og bakkalárstigi. Námskeiðið er haldið af Menntavísindasviði HÍ að undirlagi Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara. Umsjón með náminu hefur Meyvant Þórólfsson, lektor (meyvant@hi.is). Umsóknarfrestur er til 10. júní
Þátttaka á námskeiðinu er háð samráði og samþykki skólameistara þar sem gera má ráð fyrir einhverri röskun á kennslu þátttakenda. Ekki mun verða um að ræða styrkgreiðslu frá Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldskóla vegna þessa náms en Samstarfsnefnd mun borga innritunargjald fyrir þátttakendur.
Umsóknir
Umsóknir skulu sendar í tölvupósti til Huldu Mjallar Hauksdóttur hjá EHÍ: hulda@hi.is. Þar þurfa að koma fram upplýsingar um próf/háskólapróf, kennsluréttindanám, kennslugrein/greinar, skóla sem starfað er í, starfshlutfall, ásamt almennum upplýsingum um umsækjanda. Afrit af háskólaprófi skal senda annað hvort rafrænt í tölvupósti á ofangreint tölvupóstfang eða í hefðbundnum pósti til:
Endurmenntun Háskóla Íslands
bt. Huldu Mjallar Hauksdóttur
Dunhaga 7
107 Reykjavík.
Samstarfsnefnd um endurmenntun mun velja úr umsóknum en námskeiðið er boðið fram með fyrirvara um næga þátttöku.