Námsbrautir Endurmenntunar

Taktu skrefið - skapaðu þína eigin framtíð



Umsagnir frá nemendum Endurmenntunar


"Námið fór langt fram úr mínum væntingum. Kennarar voru úr fremstu röð íslenskra fræðimanna og mátti glögglega sjá að þar var valið af kostgæfni. Það var svo gaman að mér fannst slæmt að missa stundum úr tíma, en það kom ekki að sök því námið er líka kennt í fjarnámi."

Íris Sveinsdóttir, útskrifuð úr Leiðsögunámi á háskólastigi


"Eitt það besta við nám í Endurmenntun er að einungis er tekið fyrir eitt fag í einu og það klárað áður en næsta fag hefst. Ekki skemmir að andinn hjá Endurmenntun er frábær hvort sem er hjá nemendum eða starfsmönnum sem maður þarf að leita til. Get hiklaust mælt með þessu námi við alla."


Laufey Sigurðardóttir, útskrifuð úr Gæðastjórnun


"Eftir 25 ára starf á ýmsum stigum stjórnsýslunnar, innanlands og utan, var ég reynslunni ríkari en fannst mig vanta dýpri skilning á verkefnaumsýslu og stjórnun. Því greip ég fegins hendi tækifæri til að hefja diplómanám í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun. Námið reyndist fyllilega standa undir væntingum og jók ekki bara þekkingu mína á verkefnastjórnun heldur veitti mér nýja sýn á önnur stjórnunartengd atriði. Ekki síst var hópvinnan dýrmæt því það er mjög lærdómsríkt að vinna að verkefnum utan eigin þægindaramma. Það sem kom mér mest á óvart voru krefjandi, en um leið mjög gefandi, áfangar í leiðtoga- og samskiptafærni. Námið hefur nú þegar nýst mér vel  bæði í leik og starfi."


Ágústa Gísladóttir, útskrifuð úr Verkefnastjórnun - Leiðtogaþjálfun


"Ég hef starfað við áætlanagerð, hönnun og eftirlit með mannvirkjagerð í rúmlega 25 ár. Með þátttöku í þessu námi fékk ég mjög góða sýn yfir þetta viðamikla ferli og tækifæri til þess að kynna mér nánar þá þætti sem ég taldi mig hafa mest gagn af.
Námið er mjög vel upp byggt, með framúrskarandi fyrirlesurum og leiðbeinendum. Námsgögnin eru umfangsmikil og munu þau nýtast mér vel í komandi störfum.
Eitt það mikilvægasta við námið var að kynnast nýju fólki með misjafnan faglegan bakgrunn. Nemendur skiptust á skoðunum og miðluðu hver öðrum af reynslu sinni.
Ég mæli hiklaust með náminu fyrir alla þá sem vinna að mannvirkjagerð og vilja tileinka sér betur jafnt klassísk sem nútímaleg vinnubrögð."

Jóhann Már Hektorsson, útskrifaður úr Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar

"Námið hefur fyllilega staðist allar mínar væntingar og meira en það bæði vegna þess hve vel hefur tekist að samþætta fræðilega kennslu, klínisk námstækifæri og handleiðslu. Nemendahópurinn var hæfilega fjölmennur og samanstóð af reynslumiklu fagfólki úr hinum ýmsu greinum sem hefur gefið náminu enn meiri breidd og dýpt. Það er ótrúlega gefandi og lærdómsríkt að kynnast á þennan nána hátt ólíkum starfsháttum, viðhorfum og gildum samnemenda. Reglubundin handleiðsla í litlum hópum þar sem áherslan var á  klínisk viðfangsefni sem og leshópar nemenda var líka eitt af því sem upp úr stendur hvað námstækifæri varðar. Námið í heild hefur verið afar krefjandi en svo sannarlega vel þess virði og er nú þegar að nýtast mér mun betur og víðtækar en ég átti von á."

Vilborg G. Guðnadóttir, nemandi í Fjölskyldumeðferð


"Námið reyndist afar skemmtilegt og fróðlegt en jafnframt krefjandi enda kennsluhættir þannig að nemendur vinna bæði raunhæf hópverkefni sem og einstaklingsverkefni í hverjum áfanga auk hefðbundinnar kennslu. Í verkefnavinnunni lærðu nemendur einnig hver af öðrum og mynduðust sterk tengsl innan nemendahópsins sem svo sannarlega eru verðmæti ekki síður en námið sjálft."


Guðrún Sverrirsdóttir, útskrifuð úr Þjónustustjórnun og Þekkingarmiðaðri þjónustustjórnun


"Með þessu námi eykur þú atvinnutækifæri þín og styrkir tengslanet. Mikil áhersla er lögð á að vera á tánum í stjórnun og stjórnendur helstu fyrirtækja flytja fyrirlestra þar sem námið er í miklum tengslum við atvinnulífið. Þar sem einnig er boðið upp á fjarnám þá ákvað ég að taka námið staðbundið og í fjarnámi. Ég átti greiðan aðgang að námsgögnum á netinu þar sem boðið er upp á að hlusta á fyrirlestra og vera í frábæru sambandi við kennara og starfsfólk."


Unnur Pálmarsdóttir, útskrifuð úr Mannauðsstjórnun