Lögfræði



Endurmenntun leggur metnað sinn í að bjóða fagleg, starfstengd námskeið á sem flestum sviðum atvinnulífsins. Fjölbreytnin er mikil og margir starfshópar sækja stærstan hluta sinnar símenntunar til Endurmenntunar. Það er markmið okkar að mæta þörfum fólks á öllum sviðum starfstengdrar símenntunar en því markmiði verður aðeins náð með góðu og gagnvirku samstarfi við atvinnulífið og stofnanir ríkisins.

Við viljum því biðja áhugasama um að fylgjast vel með vefnum okkar eða skrá sig á póstlista Endurmenntunar til að fá sendar upplýsingar um námskeið á sviði lögfræði. Skráning á póstlista fer fram hér.


Lagaenska (e. Legal English)
The Practice of Law & Contracts

Hvenær: 16.04.2012 - 14.5.2012

Ætlað lögfræðingum, lögmönnum og dómurum sem hafa haldgóða enskukunnáttu en vilja efla þekkingu sína á hugtökum lögfræðiensku og þjálfa orðaforða, hlustun, tal og ritun. Námskeiðið fer fram á ensku.
Kennslubókin International Legal English Student's Book: A Course for Classroom or Self-Study Use (Cambridge) er innifalin í námskeiðinu.

Skráningarfrestur til 9. apríl 2012.

This course is designed for upper-intermediate learners who would like to improve their knowledge of and fluency in two areas of legal English: the practice of law and contracts. Learners should be students of law, or practicing in a legal profession.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Rangar og brostnar forsendur í samningarétti

Hvenær: 02.05.2012 - 2.5.2012

Í samningarétti er að finna ógildingarreglur sem byggja á forsendum þeirra sem stóðu að samningsgerð. Um er að ræða annars vegar ógildingarreglu 32. gr. samningalaga nr. 7/1936 um rangar forsendur og hins vegar ólögfesta ógildingarreglu samningaréttar kennda við brostnar forsendur.

Skráningarfrestur er til 25. apríl 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

 


Árið 2011 – Nýlegar breytingar á skattalögum

Hvenær: 27.01.2012 - 27.1.2012

Fjallað er um breytingar á skattlagningu einstaklinga og fyrirtækja á árinu 2011.

Nánari upplýsingar hér 

Skráningu lokið

Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna í félögum

Hvenær: 23.04.2012 - 7.5.2012

Markmiðið með námskeiðinu er að flétta saman á hagnýtan hátt umfjöllun um lög og reglur sem tengjast stjórnum félaga, einkum ábyrgð stjórnarmanna á gerðum sínum og þeirra félaga sem þeir tengjast, sem og veita leiðbeiningar hvernig best verði staðið að framkvæmd stjórnarstarfa m.t.t. skilvirkni og gagns fyrir félagið.

Skráningarfrestur er til 16. apríl 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig