|
|
Danska - þjálfun í talmáli á léttum nótum
Hvenær:
23.01.2012 - 15.2.2012
Námskeiðið hentar þeim sem þurfa að nota dönsku sem talmál í samskiptum vegna vinnu. Hentar einnig þeim sem dvalið hafa í Danmörku og vilja viðhalda kunnáttu sinni og öllum þeim sem vilja ná tökum á talmáli.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Örlög og ástir á þýsku: þjálfun í þýsku talmáli og þýskum kurteisisvenjum á nýstárlegan hátt
Hvenær:
08.02.2012 - 7.3.2012
Í samstarfi við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, Hugvísindasviði HÍ.
Markmiðið með námskeiðinu er að æfa þýskt talmál og þýskar kurteisisvenjur. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja æfa sig í þýsku talmáli til þess að vera betur í stakk búnir til að nota þýsku í samskiptum sínum við t.d. þýskumælandi viðskiptavini. Á námskeiðinu er farin ný leið til þess að þjálfa talmálið, þar sem þátttakendur fylgjast daglega með framhaldsþætti í þýska sjónvarpinu. Efni þáttanna er síðan notað til þess að æfa þýskt talmál. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi nokkurn grunn í þýsku.
Skráningarfrestur er til 1. febrúar.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Samskiptahæfni og samskipti á ensku fyrir lengra komna
Hvenær:
08.02.2012 - 29.2.2012
Enska er heimstungumál og í nútímasamfélagi eru fá störf sem ekki krefjast góðrar enskukunnáttu. Þetta námskeið er sérsniðið fyrir þá sem eru nú þegar með góðan grunn í ensku eða hafa klárað námskeiðið Hagnýt enska I hjá Endurmenntun og er einkum ætluð þeim sem vilja fyrst og fremst auka færni sína í ensku til að geta tekist á við annað nám eða störf.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Kínverska fyrir byrjendur
Hvenær:
20.02.2012 - 22.3.2012
Í samstarfi við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós
Kínverska er töluð af tæplega fimmtungi heimsins og þykir sífellt eftirsóknarverðari kunnátta með auknu vægi Kína í heiminum. Þótt vissulega megi finna fjölmargar kínverskar mállýskur er stöðluð kínverska (mandarín eða putonghua) alls staðar gjaldgeng í Kína og raunar víða annars staðar.Þetta námskeið veitir inngang að þessu heillandi tungumáli. Kennslan fer fram á ensku.
Skráningarfrestur er til 13. febrúar 2012
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Danska II
Hvenær:
20.02.2012 - 9.4.2012
Námskeiðið er sjálfstætt framhald af námskeiðinu Danska - þjálfun í talmáli og hentar því þeim sem setið hafa það námskeið og einnig þeim sem dvalið hafa í Danmörku um lengri eða skemmri tíma og vilja viðhalda kunnáttu sinni. Skráningarfrestur er til 13. febrúar 2012.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Spænska II
Hvenær:
21.02.2012 - 15.3.2012
Framhald af stigi 1. Hentar þeim sem lokið hafa stigi 1 og þeim sem hafa grunnkunnáttu í spænsku. Skráningarfrestur er til 14. febrúar 2012.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Ítalska II
Hvenær:
28.02.2012 - 20.3.2012
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa sótt námskeiðið “Ítalska fyrir byrjendur” eða hafa grunnþekkingu í ítalskri málfræði og tjáningu. Markmið námskeiðisins er að hjálpa nemendum að tjá sig í daglegum samskiptum.
Skráningarfrestur er til 21. febrúar 2012.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Kínverska II: framhaldsnámskeið
Hvenær:
12.04.2012 - 5.5.2012
Í samstarfi við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós
Námskeiðið er ætlað þeim sem þegar hafa tileinkað sér grunn í staðlaðri kínversku (mandarín eða putonghua) og fýsir að dýpka þekkingu sína. Á námskeiðinu er haldið áfram þaðan sem frá var horfið á byrjendanámskeiðinu og einkum einblítt á hagnýt hversdagsleg samskipti. Einnig verða fleiri algeng kínversk tákn kynnt til sögunnar. Þannig hentar námskeiðið prýðilega fyrir þá sem hyggjast ferðast um Kína á eigin vegum, dvelja þar um lengri hríð eða hafa einfaldlega áhuga á að öðlast betri skilning á þessari fjölmennustu þjóð heims. Kennslan fer fram á ensku.
Skráningarfrestur er til 29. mars 2012
Nánari upplýsingar hér
|
|