Námsráðgjöf Endurmenntunar Háskóla Íslands

Hjá námsráðgjafa er hægt að fá endurgjöf á vangaveltur sínar og frekari upplýsingar um námsmöguleika, forkröfur, uppbyggingu náms, væntanlegan afrakstur þess o.fl. Vel ígrundað námsval sem byggir á áhuga, réttum upplýsingum og skilningi getur margfaldað ávinning námsmannsins af námi sínu.
Hlutverk námsráðgjafans er jafnframt að veita nemendum og námshópum leiðsögn og ráðgjöf varðandi bætt vinnubrögð í námi og fleira er lýtur að námstækni, tímastjórnun, um samskipti og skipulagningu í hópastarfi og stjórnun prófkvíða.


Þjónusta námsráðgjafa

 

  • Ráðgjöf vegna námsvals
  • Námstækninámskeið
  • Fyrirlestur um próftækni, prófundirbúning og stjórnun prófkvíða
  • Aðstoð við nemendur með sértæka námserfileika
  • Ráðgjöf um tímastjórnun og skipulagningu
  • Áhugasviðsgreining

 

Skrifstofa og viðtalstímar

Námsráðgjafi Endurmenntunar, Kristín Birna Jónasdóttir er með opna skrifstofu frá klukkan 9:00-17:00 alla virka daga. Áhugasamir geta bókað viðtal eftir samkomulagi í síma 525 5296 eða sent inn fyrirspurnir á netfangið namsradgjof@endurmenntun.is



Námskeið í námstækni

Námsráðgjafi býður nemendum sem eru að hefja nám samhliða starfi hjá Endurmenntun HÍ á námskeið í námstækni þeim að kostnaðarlausu. Hentar þeim sem ekki hafa sótt sambærileg námskeið áður. (Ath. þetta er óskylt námskeiðinu Akademísk vinnubrögð).


Hámarksfjöldi nemenda á námskeiðið er 35

Skráning fer fram á heimasíðu Endurmenntunar og í síma 525 4444


Áhersla er lögð á bættar námsvenjur og aukið skipulag í námi. Til umfjöllunar eru þættir eins og tímastjórnun, áætlanagerð, hópverkefnavinna, skipulag, markmiðasetning í námi og framkvæmd markmiða. Ýmsar aðferðir við glósugerð eru kynntar, þ.m.t. Mind Mapping (hugarkortagerð) og glósur í Power Point skjöl. Farið er í lestrar- og minnistækniaðferðir, hvernig próflestur og prófundirbúningur verður best skipulagður og rætt um prófkvíða. Fjallað er um nám á fullorðinsárum í tengslum við sjálfsmynd auk þess sem komið er inn á þætti eins og námsaðstæður (fjölskylda - starf - nám), líðan í námi o.fl.